Bloggi blogg

ER bara búin að vera að vinna næstum því siðan í gær en fekk að sofa til 7 og vann frá 7-7 í gær og frá 7-3 í dag. í vinnuni  fundum við fisk og Auður og Habba ætla að láta mig elda hann fyrir sig. Það verður hlaðborð og fordrykkur.En á morgun er skólaferðalagið förum ekki fyrr en kl 9 því að Aníta þarf að taka samræntpróf. En hun þarf að koma kl hálf 7. O g eg er ekki buin að pakka niður sjett hvað á eg að gera.  Við Ætlum í rafting , kletta klifur, hesta ferð og á Akureyri. Ég veit ekki hvort eg þori í allt en maður verður að prófa allt til að vera viss.

Í gær fór eg að sjá litla prinsin hjá Jenny og Þorsteini, algjört krutt opnaði auguna og allt og nátturlega að gráta.


Loksins ........... og eg er orðin stóri frændi aftur

Í dag var seinasta samrænda prófið. Það var erfitt. Nei það var ógeðslega erfitt. Mér kviður ekkert smá að sjá einkunarninar. Á morgun er síðan munlegt próf í ensku og dönsku á föstudagin. Og Jenny frænka er buin að koma með annan strák í heimin er ekkert smá spentur eftir að hun komi heim. ´Þröstur kom til okkar í gær þegar hun fór á spitalan um kl. 8 og barnið kom um kl.4 í nótt. Og nu er spurningin um hvað það á að heita. Ég mæli með Kjartan Atli, Hreinn Sveinn og Loftur Himin.


Sunnudagurinn blái

Ég vaknaði um 9. leitið og fór að horfa á teiknimyndirnar. Um ellefu leitið fór ég út að læra og var einn heima þvi að stelpurnar fóru í sund og mamma og Haukur fóru á einhvern móturhjóla fund. Um kl. 2. fór eg út í Skála að fá mer ís. Fór siðan heim þá var orðið frekar kallt svo að eg fór inn að læra. Mér var siðan boðið í mat hjá ömmu og afa ásamt öllum barna börnunum, Kollu, Palla, og Pálma litla og síðan var Margréti Björgu boðið lika og var grillað lambakjöt. ( í gær var nautasteik maður er svo snobbaður að maður borðar bara 5. stjörnu matUllandi) Á morgun er svo samfélagsfræði prófið. En mér kvíður mest fyrir stærðfræðini. En vona að mér og okkur öllum gangi vel í þessum prófum.   


Að læra eða ekki læra

Jæja 3 próf buinn og 3 eftir. Ég var í auka tima í samfélagsfræði í dag. USss eg var að hlæja hálfan timan og misti yddarann á gólfið og allt útum allt og ég sat hliðini á Fjólu og hun vildi endilega seta á mig varasalfa, og eg beit í vara salfan og borðið bita af honum. Svo var fjóla eitthvað að sulla með vatnið mitt og fór að skvetta á mig. Ég náttúrulega hefni min og helli vatni inná hana og hún elti mig og fór á inn á klósett og hun náði þá í mig og helt á mig og á gólfið. Þegar ég var ny buinn að þurka gólfið opnaði eg og þá kom hun aftur inn og og skvetti meira á gólfið og ég ætlaði sko ekki að þurka þetta upp og held hun hafi ekki gert það litla skvettan sú arna.


Úff 1 samrænt próf buið 5 eftir

Nú er Íslenskan buin mer fanst mér ganga ágætlega þrátt fyrir sumt sem eg var ekki viss um. Ég vara bara með pínu hnút í maganum en það lagaðist þegar við vorum byrjuð á prófinu. Ég tók ritunina í tölvu svo að kallarnir/konurnar þarna sem fara yfir prófið skilji það. Og enskan á morgun er pínu stressaður en eg held að mer eigji eftir að ganga bara ágætilega ef eg einbeiti mer vel.

  • miðvikudagur- íslenska
  • fiimtudagur - enska
  • föstudagur - danska
  • mánudagur - samfélagsfræði
  • þriðjudagur - náttúrufræði
  • miðvikudagur - stærðfræði

Ég fór í bíó á mánudagin á  Scary Movie 4. mer fanst hun ekki góð eg gat hleyið einu sinni almennilega. Mæli ekki beint með henni en. Hún er ekki eins hræðileg og nr. 1. ég horfði á hana þegar eg var 10. ára og eg vaknaði um miðja nótt og hljóp ut úr herberginu minu öskrandi og sagðist hafa séð Grimuna í í glugganum. Ég vakti alla í húsinu með þessu og mer hefur verið stritt af þessu siðan. Ég var líka spurður hvort eg þorði á þessa. 

En svo þegar prófin eru búin förum við í skolaferðalagið og þessir kennarar geta ekki verið frumlegri en það að fara alltaf það sama, norður á einhverna stað að siga, rafting, hestbak og svo förum við á Akureyri. Ég hefði viljað fara eitthvert annað. Eins og á Stokkseyri á kajak.. Nauts bara að grinast en eg vildi fara eitthvað annað.

kveðja Atli óhræddi


Mins er komin með vinnu

Jæja nu er mins kominn með vinnu í Humarvinsluni. Tók einn dag í gær en ætla siðan ekki að vinna fyrr en eftir prófinn. Eg get ekki sagt að eg væri glaður í gær þvi að eg var að vinna á flokkara. Já þetta er ekki búið, það voru lika bara pólverjar á honum og líka Lölli. Eg er allveg viss um að þeir hata mig. Fyrst var einn að segja mer að eg mætti seta brotin humar með heila humrinum. Svo fór hann að taka humar upp úr slitkörfuni minni og sagði að þetta ætti að fara með heila humrinum. Og svo erum við í skipti pásu og eg er alltaf einn í pásu. En Þeir voru lika alltaf að benda á mig og sögðu eitthvað. Ég er allveg viss um að þeir séu að leggja mig í einelti. Kanski á maður bara að segja spegjill og þá er speglast þetta bara á hann. Hef notað þetta á  íslending og hún er er drullu hrædd við mig í dag. Ég hugsaði oft um að segja bara "kúrva" eða "sa bíetsa" eða hóra og eg drep þig.  En jæja nenni  ekki að bulla meira. 

P.S skrifa kanski bók um einelti á útlensku

Atli Humar"pólverji" kveður að sinni


Samrændu prófin að byrja

Jæja nu eru allt á fullu. Samrænduprófin byrja á miðvikudaginn. Við í 10.bekk erum ný búinn að setja upp leikritið Grease fyrir fullum sal af fólki. Danél og Anna Mjöll voru frábær  og Danél algjör hetja að leika meðan hann var svona veikur.

Ég vara að allan miðvikudaginn og kom eim í korter eða eitthvað. En það var þess virði þvi að þetta var massa gaman Gráðugur. Vikingur vara lika geggað flottur á motorhjolinu sinu.

Í dag horfðum við á Pride and pedejust (held að þetta se rett skrifað hja mer) og bla bla bla rómantískt kjaftæði likar það ekki en Við þurfum að fara í "oraly test" í þessu.


« Fyrri síða

Um bloggið

Ef ekki eg þá hvað

Höfundur

Atli Freyr Reimarson
Atli Freyr Reimarson
Eg er 16 ára strakur úr Þorlákshöfn

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Skírnarskreyting
  • skrírnarskreyting
  • Litla prinsessan
  • svangur bíbí
  • sólbað

Bloggarar

Ef ekki min síða þá þessar

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband